Join us on a literary world trip!
Add this book to bookshelf
Grey
Write a new comment Default profile 50px
Grey
Listen online to the first chapters of this audiobook!
All characters reduced
Prédikarinn - cover
PLAY SAMPLE

Prédikarinn

Biblían

Narrator Þóra Karítas Árnadóttir

Publisher: Hið íslenska biblíufélag

  • 0
  • 0
  • 0

Summary

Prédikarinn telst til spekirita Gamla testamentisins en er þó að mörgu leyti óháð hinni hefðbundnu spekistefnu og dregur í efa fjölmargar niðurstöður hennar. Raunar er efinn áberandi einkenni á boðskap Prédikarans. Prédikarinn hefur að ýmsu leyti sérstöðu meðal rita Gamla testamentisins. Hann hefur að geyma íhuganir, vangaveltur og spakmæli af ýmsu tagi. Bölsýni Prédikarans er óneitanlega í mótsögn við ríkjandi viðhorf í Gamla testamentinu, bæði hefðbundna guðfræði Gamla testamentisins og guðfræði annarra spekirita sem yfirleitt eru bjartsýnni. Boðskapur Pré-dikarans er mjög fjölbreytilegur og örðugt að koma auga á rauða þráðinn í ritinu. Efnislega er einkum fjallað um fánýti lífsins. Að formi til er ritið nær eingöngu í 1. persónu. Ritið er ein af hátíðar-bókum Gyðinga og er það lesið á laufskálahátíðinni, þegar fölvi haustsins færist yfir, og boðar fallvelti lífsins. 
Skipting ritsins 
1.1–2.26 Allt er hégómi 
3.1–11.7 Ýmiss konar ummæli um lífið 
11.8–12.8 Ýmis ráð 
12.9–12.14 Niðurlag
Duration: 35 minutes (00:35:18)
Publishing date: 2024-08-01; Unabridged; Copyright Year: — Copyright Statment: —