¡Acompáñanos a viajar por el mundo de los libros!
Añadir este libro a la estantería
Grey
Escribe un nuevo comentario Default profile 50px
Grey
¡Escucha online los primeros capítulos de este audiolibro!
All characters reduced
Álfagullið - cover
REPRODUCIR EJEMPLO

Álfagullið

Grimmsbræður

Narrador Árni Beinteinn Árnason

Editorial: SAGA Egmont

  • 0
  • 0
  • 0

Sinopsis

Gullsmiður og skraddari voru saman á ferðalagi þegar þeir heyra einkennilegan söng.  Þeir ganga á hljóðið og finna hóp af dvergum dansandi og syngjandi saman í hring. Inni í miðjum hringnum stóð gamall maður og brýndi hníf. Gamli maðurinn rakar skegg og hár af þeim félögum sem nú var hætt að lítast á blikuna enda alls ekki vissir um það hvort þeir væru staddir í raunheimum eða í draumi.  Daginn eftir vakna gullsmiðurinn og skraddarinn með vasana fulla af gulli. Gullsmiðurinn vill ólmur gera aðra tilraun til að hitta dvergana og freista þess að fá meira gull á meðan skraddarinn var ánægður með sinn hlut. Gullsmiðurinn heldur af stað til fundar við dvergana en allt fer á annan veg fyrir gullsmiðinn sem mátti sætta sig við að græðgin varð honum að falli. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
Duración: 6 minutos (00:06:02)
Fecha de publicación: 19/10/2021; Unabridged; Copyright Year: — Copyright Statment: —