¡Acompáñanos a viajar por el mundo de los libros!
Añadir este libro a la estantería
Grey
Escribe un nuevo comentario Default profile 50px
Grey
Suscríbete para leer el libro completo o lee las primeras páginas gratis.
All characters reduced
Biðgeir - cover

Biðgeir

Karl Bjornsson

Editorial: Publishdrive

  • 0
  • 0
  • 0

Sinopsis

Biðgeir er gamall sérvitur einstæðingur sem leggur stund á hugleiðslu í stórmörkuðum sér til hugahægðar. Dag einn er hann staddur í Húsasmiðjunni /Blómavali í djúpri hugleiðslu þegar hann finnur fyrir óþægilegri truflun sem reynist stafa frá síðmiðaldra karlmanni sem stendur álengdar og fylgist með honum. Maðurinn spyr Biðgeir hvort hann sé ekki Sigurbjörn... sá sem beygði skeiðar á skemmtunum. Biðgeir bregst reiður við, enda hafði þessi maður eyðilagt fyrir honum sérdeilis vel heppnaða hugleiðslustund, auk þess virtist þessi ásökun – að hann heitii Sigurbjörn og hann hefði beygt skeiðar – leggjast illa í Biðgeir. Í framhaldi af þessum fyrsta fundi þessara manna fer af stað einkennileg og á stundum dularfull atburðarás, þar sem Biðgeir reynir allt hvað hann getur til að bjarga manninum (Ormi) úr helgreipum áhrifavaldsins Önnu Cordelíu.
Disponible desde: 21/11/2024.
Longitud de impresión: 100 páginas.

Otros libros que te pueden interesar

  • Örlög álfafólksins 3: Týndu grafirnar - cover

    Örlög álfafólksins 3: Týndu...

    Peter Gotthardt

    • 0
    • 0
    • 0
    Í djúpum iðrum fjallanna, þar sem leyndardómar fortíðar hvíla, hefst leitin að týndri gröf Perlumóður drottningu. Hvað ætli leynist í völundarhúsi myrkra hella? 
    Brómstilkur, ásamt tröllavini sínum og nokkrum riddurum, leggja af stað í hættulega ferð djúpt undir yfirborði jarðar. Örlög álfafólksins hvíla á herðum þeirra. Þau þurfa að finna fornan töfrasprota sem leynist í týndri gröf því hann gæti verið þeirra eina von um að sigra bardagann. Leiðin liggur í gegnum myrkvaða hella þar sem óvæntar verur leynast. Hvert fótmál gæti leitt þau nær markmiði sínu eða glatað þeim að eilífu. Á sama tíma ræðst Freyjubrá til atlögu á her Hroka konungs. Þar mætir hún óvæntum óvini sem setur áform hennar úr skorðum. Öll von virðist úti og land álfanna mun hrynja. Hefur hún nægan styrk til að yfirubuga óvininn?  
    Ef þú ert að leita að annarri seríu sem sameinar töfra, álfa og bardaga líkt og Keeper of the Lost Cities, þá er Örlög álfafólksins serían frábær kostur. 
    Peter Gotthardt er fæddur í nágrenni Kaupmannahafnar í Danmörku árið 1946. Hann var mikill lestrarhestur í æsku og drakk í sig sögur og ævintýri sem hann fann á bókasafninu.  
    Peter hefur samið meira en sextíu bækur fyrir börn og margar þeirra fjalla um álfa.
    Ver libro
  • Örlög álfafólksins 2: Steinhjartað - cover

    Örlög álfafólksins 2: Steinhjartað

    Peter Gotthardt

    • 0
    • 0
    • 0
    Í fallegum Arnardal þar sem álfarnir hafa leitað skjóls undan ógnar her Hroka konungs, virðist allt vonlaust. Óvinurinn er sagður ósigrandi, en getur verið að hann geymi leyndarmál sem gæti fellt hann? 
    Brómstilkur, litli bróðir Freyjubráar, kynnist tröllastrák. Þeir vilja hjálpa til við að berjast gegn óvininum en þykja of ungir til þess. Vinirnir taka þá ákvörðun að laumast inn í herbúðir Hroka konungs. Ferðin er ekki hættulaus en með miklu hugrekki, og smá óheppni, gera þeir óvænt merka uppgötvun sem mun koma álfunum að miklu gagni. Svartálfarnir koma úr undirheimum fjallanna til að aðstoða álfana. Prinsessa svartálfanna segir forna sögu um töfrasprota sem gæti sigrast á myrkum öflum. En hvar er hann? Þetta er ekki bara saga um stríð heldur líka um vaxandi vináttu, leyndarmál og leit að fornum töfrum sem gætu verið eina von álfanna.  
    Serían Örlög álfafólksins er sniðin fyrir þá sem vilja upplifa sömu ævintýra tilfinningu og í Ævintýraheimi Narníu þar sem hugrekki og samstaða skipta lykilmáli til þess að bjarga landinu. 
    Peter Gotthardt er fæddur í nágrenni Kaupmannahafnar í Danmörku árið 1946. Hann var mikill lestrarhestur í æsku og drakk í sig sögur og ævintýri sem hann fann á bókasafninu.  
    Peter hefur samið meira en sextíu bækur fyrir börn og margar þeirra fjalla um álfa.
    Ver libro
  • Örlög álfafólksins 4: Álagaflautan - cover

    Örlög álfafólksins 4: Álagaflautan

    Peter Gotthardt

    • 0
    • 0
    • 0
    Öll von virðist úti. Freyjubrá getur ekki hreyft sig. Hún er sú eina á eyðisléttunni sem ekki er alveg búin að breytast í tré. Kemur einhver þeim til bjargar? Eru þetta endalok álfanna? 
    Freyjubrá og álfaherinn hafa verið hneppt í álög. Allt virðist vonlaust en örlítill vonarneisti heldur þeim á lífi. Brómstilkur og félagar hans hafa verið teknir til fanga í höll Hroka konungs. Dvergdepla drottning, sem hafði flúið upp til fjalla, leggur í hættuför til að bjarga álfunum með dularfullum en hæfileikaríkum álfi. Á leið þeirra til álfanna einbeitir hann sér við að búa til einhvað úr trjágrein. Hvað ætli það sé? Hvernig getur það skipt máli? Brómstilkur og félagar hans reyna að finna leið til að flýja úr greipum stálhnefanna. Munu álfarnir ná að sameinast og sigra myrkrið sem hefur heltekið álfalandið? 
    Serían Örlög álfafólksins er fullkomin fyrir þá sem vilja upplifa ævintýralega baráttu fulla af töfrum og spennu í anda Deltora Quest. 
    Peter Gotthardt er fæddur í nágrenni Kaupmannahafnar í Danmörku árið 1946. Hann var mikill lestrarhestur í æsku og drakk í sig sögur og ævintýri sem hann fann á bókasafninu.  
    Peter hefur samið meira en sextíu bækur fyrir börn og margar þeirra fjalla um álfa.
    Ver libro
  • Örlög álfafólksins 1-4 - cover

    Örlög álfafólksins 1-4

    Peter Gotthardt

    • 0
    • 0
    • 0
    Voldugur óvinur hefur ráðist inn í álfalandið og er staðráðinn í því að ráða þar ríkjum. Álfarnir þurfa að finna leið til þess að sigra hann og bjarga landinu sínu. Komdu með í spennandi ævintýri þar sem vinátta, hugrekki og von eru lykillinn að því að sigra óvininn! 
    Í hinu fagra álfalandi, þar sem græn lauf prýða eikartré og gleði fyllir hjörtu, lifa álfarnir friðsælu lífi. En skyndilega er ró þeirra raskað þegar voldugur óvinur, Hroki konungur og herinn stálhnefarnir, ráðast inn í álfalandið, reiðubúnir að hneppa alla álfa í ánauð. Með hjartað fullt af reiði og sorg grípa álfarnir til varnar til að verja framtíð sína og frelsi. Álfarnir neyðast til að fela sig til að safna kröftum og finna leið til þess að fá landið sitt aftur. Freyjubrá, ung álfaprinsessa, er hugrökk og ákveðin í að berjast fyrir landið sitt. Verkefnið er ekki auðvelt og hætturnar leynast víða. Mun Freyjurbrá og félögum hennar takast að finna leið til að bjarga álfalandinu? 
    Peter Gotthardt er fæddur í nágrenni Kaupmannahafnar í Danmörku árið 1946. Hann var mikill lestrarhestur í æsku og drakk í sig sögur og ævintýri sem hann fann á bókasafninu.  
    Peter hefur samið meira en sextíu bækur fyrir börn og margar þeirra fjalla um álfa.
    Ver libro
  • Þriðji tvíburinn - cover

    Þriðji tvíburinn

    Ken Follett

    • 0
    • 0
    • 0
    Þriðji tvíburinn er æsispennandi saga um dulda illsku frá meistara spennusagnanna, Ken Follett. 
    Jeannie Ferrami er ung vísindakona sem rannsakar atferli eineggja tvíbura sem aldir hafa verið upp hvor í sínu lagi. Við rannsóknir sínar uppgötvar hún dularfulla ráðgátu: Eineggja tvíbura sem fæddir eru sitt hvorn daginn, á sitt hvorum staðnum og hvor með sína móðurina. 
    Annar þeirra, Steve, er indæll laganemi, meðan hinn er dæmdur morðingi. Meðan Jeannie vinnur með Steve að verkefni sínu verður hún ástfangin af honum, en verður fyrir miklu áfalli þegar hann er sakaður um hræðilegan glæp. Jeannie efast um sakargiftirnar, en til að sanna það þarf hún að kollvarpa öllu sem hún hefur áður trúað. Eftir því sem hún grefst meira fyrir, uppgötvar hún ógnvekjandi samsæri - og ljóst er að einhver er tilbúinn að drepa til að halda því leyndu. 
    Þriðji tvíburinn kom fyrst út árið 1996 og hefur síðan selst í yfir 10,5 milljónum eintaka um allan heim. 
    Árið 1997 kom út sjónvarpsmynd með sama nafni og bókin, The Third Twin. 
    Ken Follett er breskur metsöluhöfundur. Af þeim 37 titlum sem hann hefur ritað hafa selst yfir 195 milljón eintök á 40 tungumálum í fleiri en 80 löndum. Hann fæddist í Cardiff í Wales árið 1949 og lærði heimspeki á sínum yngri árum áður en hann fór að starfa sem blaðamaður. Árið 1978 skaust hann upp á stjörnuhimininn með bók sinni Nálarauga (Eye of the Needle). Hann hefur ritað mikið af sögulegum skáldsögum, en ein sú vinsælasta er bókin Pillars of the Earth, sem var gerð að sjónvarpsþáttaröð árið 2010. Ken dáir tónlist næstum jafn mikið og bækur og spilar gjarnan á bassagítar. Hann býr í Herefordshire í Englandi með konu sinni Barböru, en þau eiga saman fimm börn, sex barnabörn og þrjá labradora. Hann er virkur í ýmiss konar góðgerðastarfsemi og var formaður Dyslexia Action í áratug.
    Ver libro
  • Örlög álfafólksins 1: Járngráir stríðsmennn - cover

    Örlög álfafólksins 1: Járngráir...

    Peter Gotthardt

    • 0
    • 0
    • 0
    Freyjubrá er ung álfaprinsessa sem þarf að finna mikinn styrk innra með sér til að leiða fólkið sitt í baráttu gegn voldugum óvini. Getur Freyjubrá orðið sá leiðtogi sem álfarnir þurfa á að halda? 
    Hvað gerist þegar friðsæla álfalandið verður fyrir árás? Dvergdepla, drottning álfanna, stendur frammi fyrir mikilli áskorun þegar her Hroka konungs ræðst inn í álfalandið. Álfarnir neyðast til að flýja og berjast fyrir tilveru sinni. Dvergdeplu finnst erfitt að ráða við aðstæður. Ung og hugrökk álfaprinsessa, Freyjubrá, stígur upp í baráttunni við her Hroka. Hún kynnist ungum bóndasyni og saman reyna þau að finna leið til að hjálpa álfunum að lifa af. Stálhnefarnir leynast alls staðar í skóginum. Hætta leynist hvert sem Freyjubrá snýr sér. Mun þessi unga prinsessa geta staðið upp í hárinu á óvininum og veitt álfunum von á þessum myrku tímum?  
    Í anda Hobbit sameinar serían Örlög álfafólksins spennu, vináttu og ævintýri sem hentar fullkomlega fyrir þá sem vilja týna sér í töfrandi heimi. 
    Peter Gotthardt er fæddur í nágrenni Kaupmannahafnar í Danmörku árið 1946. Hann var mikill lestrarhestur í æsku og drakk í sig sögur og ævintýri sem hann fann á bókasafninu.  
    Peter hefur samið meira en sextíu bækur fyrir börn og margar þeirra fjalla um álfa.
    Ver libro