Malakí
Biblían
Narrador Kristján Franklín Magnús
Editora: Hið íslenska biblíufélag
Sinopse
Rit Malakí spámanns fjallar um aðstæður í Jerúsalem og Júda eftir að útlegðinni í Babýloníu lauk og eftir að musterið í Jerúsalem hafði verið endurreist 515 f.Kr. Það sem einkum vakir fyrir Malakí er að hvetja þjóðina og presta hennar til að hverfa aftur og endur-nýja trúfesti sína við sáttmála Guðs. Framsetning ritsins greinir það mjög skýrt frá öðrum spámannaritum í Gamla testamentinu en það er sett saman af greinilega afmörkuðum samtölum. Lögð er áhersla á kærleika Guðs til Ísraels en jafnframt á sviksemi Ísraels við Drottin frá upphafi sögu þjóðarinnar. Gagnrýni spámannsins á helgihald og siðgæði byggist á lögmálinu í Fimmtu Mósebók og er beint vitnað til laga Móse frá Hóreb í Malakí 3.22. Skipting ritsins 1.1–2.16 Syndir Ísraels 2.17–4.6 Dómur Drottins og miskunn
Duração: 13 minutos (00:13:21) Data de publicação: 01/08/2024; Unabridged; Copyright Year: — Copyright Statment: —

