Jósúabók
Biblían
Narrador Ragnheiður Steindórsdóttir
Editorial: Hið íslenska biblíufélag
Sinopsis
Ritið er kennt við Jósúa sem var eftirmaður Móse. Í fyrsta hluta ritsins eru frásagnir af innrás Ísraelsmanna í Kanaansland undir forystu Jósúa. Innrásin var gerð samkvæmt fyrirmælum Drottins sem grípur oft, beint og óbeint, inn í atburðarásina. Í frásögninni er lögð áhersla á hið yfirnáttúrlega. Annar hluti ritsins segir frá skiptingu landsins milli ættbálkanna og fór hún fram með hlutkesti samkvæmt fyrirmælum Drottins (13.1–13.7). Í þriðja hluta (23. og 24. kafla) eru tvær kveðjuræður Jósúa þar sem hann fær þjóðina til að skuldbinda sig til að hlýða Drottni. Síðari ræðan tengist endurnýjun sáttmálans í Síkem. Ritinu lýkur síðan með stuttri frásögn af dauða Jósúa og greftrun. Einn kunnasti hluti ritsins er frásögnin af falli Jeríkó (6. kafli). Skipting ritsins 1.1–12.24 Landið unnið 13.1–22.34 Landinu skipt 13.1–13.33 Landið fyrir austan Jórdan 14.1–19.51 Landið fyrir vestan Jórdan 20.1–20.9 Stofnun griðaborga 21.1–21.45 Borgir Levíta 22.1−22.34 Um guðsdýrkun 23.1−23.16 Kveðjuræða Jósúa 24.1−24.33 Þingið í Síkem
Duración: alrededor de 2 horas (02:19:54) Fecha de publicación: 01/08/2024; Unabridged; Copyright Year: — Copyright Statment: —

