Junte-se a nós em uma viagem ao mundo dos livros!
Adicionar este livro à prateleira
Grey
Deixe um novo comentário Default profile 50px
Grey
Ouça online os primeiros capítulos deste audiobook!
All characters reduced
Grímsævintýri - Ævisaga hunds - cover
OUçA EXEMPLO

Grímsævintýri - Ævisaga hunds

Anônimo

Editora: Kristin Helga Gunnarsdottir

  • 0
  • 0
  • 0

Sinopse

Hér fara æviminningar hundheppna hamingjudýrsins Gríms Fífils. Hann var fuglaveiðihundur sem veiddi aldrei fugla þótt hann gerði stundum flugu mein. Besta og Fúli völdu hann sérstaklega upp úr hvolpabæli úti í bæ og hann bjó með þeim og krílunum alla sína hundstíð. Grímur Fífill fór í hundaskóla en það átti ekki við hann. Samt kenndi Grímur Bestu og Fúla miklu meira en þeim tókst nokkru sinni að kenna honum. Góðir vinir ganga ekki endilega allir á tveimur fótum. 
Grímur Fífill fól Kristínu Helgu Gunnarsdóttur að rita ævisögu sína, enda er hún með áratuga reynslu í að tala við hunda. Síðan bað hann Halldór Baldursson að teikna myndirnar því hann kann líka hundamál. 
„Það er frásagnarmáti bókarinnar sem gerir hana eftirminnilega og sérstaklega skemmtilega. Í togstreitunni á milli hundmiðjaðrar frásagnar Gríms Fífils á atvikum í lífi sínu og skilnings lesandans á því sem raunverulega átti sér stað lifna æviminningarnar við og verða að ævintýrum.”Úr umsögn dómnefndar Fjöruverðlaunanna 
„Mér finnst ég skilja hunda betur!“Kristján Kristjánsson / Föstudagsþátturinn, N4
Duração: aproximadamente 2 horas (01:40:33)
Data de publicação: 30/12/2025; Unabridged; Copyright Year: — Copyright Statment: —