Hósea
Biblían
Erzähler Kristján Franklín Magnús
Verlag: Hið íslenska biblíufélag
Beschreibung
Hósea starfaði í Norðurríkinu (Ísrael) skömmu á eftir Amosi. Þetta voru umbrotatímar fyrir fall Norðurríkisins og Samaríu. Hósea beindi spjótum sínum einkum að hjáguðadýrkun þjóðarinnar og sviksemi hennar við Drottin. Hann notaði hjónaband sitt sem líkingu og líkingamálið er fyrirferðarmikið í boðskap hans. Eins og hin ótrúa eiginkona hans hóraðist með friðlum sínum, þannig hafði þjóðin svikið Guð í tryggðum. Gagnrýni Hósea beindist einkum gegn rangri guðsdýrkun og dýrkun falskra guða, gegn konungdæminu og gegn bandalagi við erlendar þjóðir. Hósea boðaði dóm en hann horfði jafnframt fram til tímans eftir hörmungar dómsins. Þá mundi þjóðin bera gæfu til að leggja stund á sanna guðsdýrkun. Hann prédikaði að Guð krefðist miskunnsemi fremur en fórna. Skipting ritsins 1.1–3.5 Hjónaband spámannsins 4.1–13.16 Ákæra á hendur Ísrael 14.1–14.9 Hvatning til iðrunar og afturhvarfs
Dauer: 40 Minuten (00:39:46) Veröffentlichungsdatum: 01.08.2024; Unabridged; Copyright Year: — Copyright Statment: —

