Rejoignez-nous pour un voyage dans le monde des livres!
Ajouter ce livre à l'électronique
Grey
Ecrivez un nouveau commentaire Default profile 50px
Grey
Écoutez en ligne les premiers chapitres de ce livre audio!
All characters reduced
Fjórða Mósebók - Numeri - cover
ÉCOUTER EXTRAIT

Fjórða Mósebók - Numeri

Biblían

Narrateur Álfrún Helga Örnólfsdóttir

Maison d'édition: Hið íslenska biblíufélag

  • 0
  • 0
  • 0

Synopsis

Alþjóðlegt heiti Fjórðu Mósebókar, Numeri, er sótt í latínu og merkir fjöldi eða tala og vísar til manntalsins sem Móse tók tvisvar meðal Ísraelsmanna, fyrst áður en þeir héldu frá Sínaífjalli og svo í Móabslandi fyrir austan Jórdan, nærri heilli kynslóð síðar. Í bókinni er rakin saga Ísraelsmanna á nærri fjörutíu ára göngu þeirra frá Sínaífjalli að austurlandamærum þess lands sem Drottinn hafði heitið þeim. 
Fjórða Mósebók segir sögu fólks sem var oft og tíðum óttaslegið andspænis þeim erfiðleikum sem urðu á vegi þess og reis oft upp bæði gegn Guði og Móse sem hann hafði útvalið til að leiða fólkið inn í Kanaansland. Jafnframt vitnar bókin um trúfesti Guðs og umhyggju hans fyrir þjóð sinni. Engin Mósebóka hefur að geyma jafnfjölbreytilegt efni og Fjórða Mósebók. 
Skipting ritsins 
1.1–9.23 Ísraelsmenn búast til brottfarar frá Sínaífjalli 
10.1–21.35 Frá Sínaífjalli til Móabslands 
22.1–32.42 Atburðir í Móab 
33.1–33.49 Áfangastaðir Ísraels á leið til Kanaanslands 
33.50–34.29 Fyrirmæli um skiptingu landsins vestan við Jórdan 
35.1–35.34 Borgir Levíta og griðaborgir 
36.1–36.13 Viðbót við erfðarétt kvenna
Durée: environ 3 heures (03:17:39)
Date de publication: 01/08/2024; Unabridged; Copyright Year: — Copyright Statment: —