Rejoignez-nous pour un voyage dans le monde des livres!
Ajouter ce livre à l'électronique
Grey
Ecrivez un nouveau commentaire Default profile 50px
Grey
Écoutez en ligne les premiers chapitres de ce livre audio!
All characters reduced
Milljón steinar - og Hrollur í dalnum - cover
ÉCOUTER EXTRAIT

Milljón steinar - og Hrollur í dalnum

Anonyme

Maison d'édition: Kristin Helga Gunnarsdottir

  • 0
  • 0
  • 0

Synopsis

Í Milljón steinar og Hrollur í dalnum segir frá Heklu sjö ára. Hekla á systurina Kötlu, eins árs, og afar upptekna foreldra, enda á fullu í hinu svokallaða lífsgæðakapphlaupi. Sagan gerist þegar foreldrar systranna sjá færi á því að lyfta sér upp milli anna með því að fara í stutta ferð til Parísar. Ekki væsir heldur um Heklu og Kötlu, því að systurnar dvelja í góðu yfirlæti hjá afa og ömmu á Nornabjargi í Skessudal á meðan foreldrarnir eru í burtu. 
Hekla er frísk stelpa með öflugt ímyndunarafl. Á þann eiginleika leikur afi til að forða því að hún fari sér að voða í ánni. Hann spinnur upp kyngimagnaða sögu í ljóðsagnastíl með öllu tilheyrandi, skrímslum, tröllum og huldufólki, og hvikar ekki eitt augnablik frá því að farið hafi verið með annað en berstrípaðan sannleikann. 
Amma fussar og sveiar, enda stendur hún ólíkt afa báðum fótum á jörðinni. Ömmu er ekkert sérstaklega um sveitina gefið og vildi miklu frekar stússast í búðinni sinni hjá Fjólu en að húka þar í öllum veðrum. Af augljósum ástæðum er Hekla því meiri afa- en ömmustelpa. 
Kyngimagnaðar verurnar í sögu afa spretta ljóslifandi fram í hugskotsjónum hennar á meðan á sveitadvölinni stendur. 
Hámarki nær atburðarásin þegar Hekla læðist út til að létta álögum af heimasætunni í Tungu um miðnætti eina nóttina. Henni tekst ætlunarverkið og farsæll endir virðist í sjónmáli þegar hinn misheppnaði veiðihundur Eyjólfur lendir í óvæntum hrakförum. Hann flækist í öngli veiðimanns og þarf að heimsækja dýralækni til að hljóta bót meina sinna. 
Frásögnin er skrifuð frá sjónarhóli Heklu og einkennist af frábæru innsæi og gætni nánast hvar sem borið er niður. 
Hekla er afar lifandi og heilsteypt persóna frá höfundarins hálfu. Smáir atburðir geta virst stórir, atburðir rekið hvern annan, myndað æsispennandi atburðarás og ótrúlega ævintýraheima. 
Stórskemmtilega og æsispennandi saga.
Durée: environ 2 heures (02:03:41)
Date de publication: 30/12/2025; Unabridged; Copyright Year: — Copyright Statment: —