Unisciti a noi in un viaggio nel mondo dei libri!
Aggiungi questo libro allo scaffale
Grey
Scrivi un nuovo commento Default profile 50px
Grey
Ascolta online i primi capitoli di questo audiolibro!
All characters reduced
Jósúabók - cover
RIPRODURRE CAMPIONE

Jósúabók

Biblían

Narratore Ragnheiður Steindórsdóttir

Casa editrice: Hið íslenska biblíufélag

  • 0
  • 0
  • 0

Sinossi

Ritið er kennt við Jósúa sem var eftirmaður Móse. Í fyrsta hluta ritsins eru frásagnir af innrás Ísraelsmanna í Kanaansland undir forystu Jósúa. Innrásin var gerð samkvæmt fyrirmælum Drottins sem grípur oft, beint og óbeint, inn í atburðarásina. Í frásögninni er lögð áhersla á hið yfirnáttúrlega. 
Annar hluti ritsins segir frá skiptingu landsins milli ættbálkanna og fór hún fram með hlutkesti samkvæmt fyrirmælum Drottins (13.1–13.7). Í þriðja hluta (23. og 24. kafla) eru tvær kveðjuræður Jósúa þar sem hann fær þjóðina til að skuldbinda sig til að hlýða Drottni. Síðari ræðan tengist endurnýjun sáttmálans í Síkem. 
Ritinu lýkur síðan með stuttri frásögn af dauða Jósúa og greftrun. Einn kunnasti hluti ritsins er frásögnin af falli Jeríkó (6. kafli). 
Skipting ritsins 
1.1–12.24 Landið unnið 
13.1–22.34 Landinu skipt 
13.1–13.33 Landið fyrir austan Jórdan 
14.1–19.51 Landið fyrir vestan Jórdan 
20.1–20.9 Stofnun griðaborga 
21.1–21.45 Borgir Levíta 
22.1−22.34 Um guðsdýrkun 
23.1−23.16 Kveðjuræða Jósúa 
24.1−24.33 Þingið í Síkem
Durata: circa 2 ore (02:19:54)
Data di pubblicazione: 01/08/2024; Unabridged; Copyright Year: — Copyright Statment: —