Unisciti a noi in un viaggio nel mondo dei libri!
Aggiungi questo libro allo scaffale
Grey
Scrivi un nuovo commento Default profile 50px
Grey
Ascolta online i primi capitoli di questo audiolibro!
All characters reduced
Jóhannesarguðspjall - cover
RIPRODURRE CAMPIONE

Jóhannesarguðspjall

Biblían

Narratore Álfrún Helga Örnólfsdóttir

Casa editrice: Hið íslenska biblíufélag

  • 0
  • 0
  • 0

Sinossi

Jóhannesarguðspjall er yngst guðspjallanna og hefur vissa sérstöðu meðal þeirra. Það er skylt öðrum Jóhannesarritum í Nýja testamentinu, Jóhannesarbréfunum og Opinberunarbókinni. Guðspjallið hefst á þeim boðskap að Jesús sé „logos“, hið skapandi orð Guðs, hans eilífa hugsun og speki í heiminn komin sem maður, hold (1.14). Hugtök eins og „líf“ og „eilíft líf“ og táknmyndir á borð við „vínvið“ og „brauð lífsins“ einkenna framsetningu guðspjallsins. Jesús er Guðs sonur, frelsarinn er veitir öllum líf (20.31). Ræður Jesú, kenning og bænir setja svip sinn á guðspjallið og að margra dómi er það áhrifamest guðspjallanna. Í 13.–17. kafla er lýst hinu nána kærleikssambandi Jesú og lærisveinanna. Hann hughreystir þá nóttina sem hann var svikinn og heitir þeim „hjálpara“, sínum heilaga anda, er veita muni þeim leiðbeiningu og styrk (15.26). Tákn Jóhannesar guðspjallamanns er örninn. 
Skipting guðspjallsins 
1.1−1.18 Formáli: Jesús er eilíft orð Guðs sem gerðist maður 
1.19−1.52 Vitnisburður Jóhannesar skírara 
2.1−12.50 Starf Jesú í Galíleu og Jerúsalem, tákn, ræður, deilur 
13.1−17.36 Jesús býr lærisveina sína undir pínu sína og dauða 
13.1−13.30 Fótaþvotturinn, svik Júdasar 
13.31−16.33 Skilnaðarræða Jesú 
17.1−17.26 Fyrirbæn Jesú − Æðstaprestsbænin 
18.1−19.42 Pína Jesú, dauði og greftrun (píslarsaga Jóhannesar) 
20.1−21.25 Upprisa Jesú
Durata: circa 2 ore (02:07:47)
Data di pubblicazione: 01/08/2024; Unabridged; Copyright Year: — Copyright Statment: —